16 Maí 2018 09:02

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lindasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.