23 Mars 2009 12:00

Þrjátíu og þrír ökumenn voru staðnir að hraðakstri í Dalsmára í Kópavogi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 33 ökumanna mynduð í Dalsmára en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Lækjasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því óku 38% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, gangbraut, biðstöð, hraðahindranir og leikskóli. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 53.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Dalsmára. Þá óku hlutfallslega miklu fleiri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 72%. Meðalhraði hinna brotlegu var sömuleiðis hærri í fyrra, eða 46 km/klst. Þróunin á milli ára er því í rétta átt en betur má ef duga skal.