1 Október 2009 12:00

Brot 54 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, að Lækjasmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 103 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sautján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 63. 

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára, en við götuna er Smáraskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.