23 Mars 2010 12:00

Brot 46 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lækjarsmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 61%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Dalsmára var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Dalsmára en þá óku hlutfallslega mun færri, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 72%.