29 September 2010 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í suðurátt, við Smáraskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.