20 Mars 2012 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, við Lækjasmára. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58. 

Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.