11 September 2012 12:00
Brot 19 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í suðurátt, steinsnar frá Smáraskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.
Vöktun lögreglunnar í Dalsmára er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.
Frá vettvangi.