14 Apríl 2008 12:00

Brot 73 ökumanna voru mynduð í Dalsmára í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dalsmára í vesturátt, að Lækjasmára. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 72%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sautján óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.      

Eftirlit lögreglunnar í Dalsmára er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Dalsmára var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.