24 Apríl 2024 11:03

Brot 80 ökumanna voru mynduð í Dugguvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Dugguvog í norðurátt, að Kuggavogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 222 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Dugguvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.