10 Ágúst 2010 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Einarsnesi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Einarsnes í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar í Einarsnesi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.