6 Júní 2013 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Engjaseli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjasel í norðurátt, við Dalsel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Engjaseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.