13 Mars 2013 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Engjaseli í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Engjasel í suðurátt, við Bakkasel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar í Engjaseli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.