1 September 2022 09:08

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 71 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt fimmtungur ökumanna,  eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar við eða í nágrenni grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.