27 September 2017 14:59

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.