24 Maí 2018 16:04

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.