24 September 2018 17:04

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, á móts við Eskihlíð 18. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.