27 Maí 2014 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Eskihlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eskihlíð í austurátt, við Blönduhlíð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Eskihlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.