12 September 2013 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Eyrarlandi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eyrarland í norðurátt, við Dalaland. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar í Eyrarlandi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.