4 Október 2012 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Eyrarlandi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eyrarland í norðurátt, við Dalaland. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 39 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar í Eyrarlandi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.