13 Apríl 2022 12:02

Brot 48 ökumanna voru mynduð í Fellsmúla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fellsmúla í austurátt, að Síðumúla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 225 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Fellsmúla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.