24 Ágúst 2012 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Fitjalind í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fitjalind í norðurátt, að Fífulind. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 61. 

Vöktun lögreglunnar í Fitjalind er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 

Vöktun lögreglunnar í Fitjalind er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.