23 Ágúst 2012 12:00

Flestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Fögrukinn í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fögrukinn í austurátt, miðja vegu á milli Hringbrautar og Bárukinnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 16 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 42 og 43 km hraða.

Vöktun lögreglunnar í Fögrukinn er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.