15 Júní 2018 11:02

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Frostaskjóli í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Frostaskjól í suðurátt, á móts við Frostaskjól 11. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Frostaskjóli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.