27 Júní 2012 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð í Frostaskjóli í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Frostaskjól í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48. 

Vöktun lögreglunnar í Frostaskjóli er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.