15 Apríl 2016 16:53

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, að Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar í Furugrund er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.