16 September 2008 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í vesturátt, rétt við Reynigrund og Víðigrund. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 43 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 53%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56. Á þessum stað í Furugrund eru bæði hraðahindranir og merki um skólabörn en mörg þeirra voru einmitt á heimleið frá skóla á meðan eftirlitið stóð yfir. 

Vöktun lögreglunnar í Furugrund, en í nágrenni hennar er Snælandsskóli, er liður í eftirliti með hraðakstri við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.