21 Apríl 2009 12:00

Fjórtán voru staðnir að hraðakstri í Furugrund í Kópavogi í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 14 ökumanna mynduð í Furugrund en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, að Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og því óku 52% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Furugrund en þá óku hlutfallslega færri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 38%. Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var líka 45 km/klst.