29 September 2010 12:00

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í vesturátt, nálægt Reynigrund. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Furugrund, en í nágrenninu er Snælandsskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.