12 Maí 2011 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, við Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið hátt, eða 38-67% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 41-45 km/klst.