20 Apríl 2012 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, við Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 12 ökutæki þessa akstursleið og því var brotahlutfallið 33%. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45. 

Vöktun lögreglunnar í Furugrund er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.