10 Apríl 2015 13:49

Brot 9 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, að Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Furugrund er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.