21 Apríl 2008 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Furugrund í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Furugrund í austurátt, að Víðigrund. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.      

Eftirlit lögreglunnar í Furugrund er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Furugrund var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.