12 Apríl 2013 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Garðastræti í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Garðastræti í norðurátt, að Túngötu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 21 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Garðastræti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.