11 Nóvember 2015 14:15

Brot 15 ökumanna voru mynduð í Gnoðarvogi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gnoðarvog í vesturátt, á móts við Gnoðarvog 52. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Gnoðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.