15 Nóvember 2012 12:00

Brot 41 ökumanns var myndað í Gnoðarvogi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gnoðarvog í vesturátt, að Skeiðarvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 102 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Gnoðarvogi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.