17 Maí 2018 10:24

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, við Bæjartún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.