15 Maí 2019 16:40

Brot 38 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, við Bæjartún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 73 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sjö óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.