17 September 2020 15:40

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, við Bæjartún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 79 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.