7 Apríl 2011 12:00

Brot 39 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, að Bæjartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 66 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrettán óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Eftirlit lögreglunnar í Grænatúni var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur. Þess má líka geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið sömuleiðis verið mjög hátt, eða 47-76%.