12 Maí 2015 12:32

Brot 29 ökumanna voru mynduð í Grænatúni í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, að Bæjartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 43%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Grænatúni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.