14 Apríl 2008 12:00

Brot 61 ökumanns var myndað í Grænatúni í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Grænatún í austurátt, að Bæjartúni. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 76%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tuttugu og sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 62.      

Eftirlit lögreglunnar í Grænatúni er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Grænatúni var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.