7 Júní 2022 10:46

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Gulaþingi í Kópavogi á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gulaþing í suðurátt, á móts við Gulaþing 4. Á einni klukkustund,  eftir hádegi, fóru 67 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 44.

Vöktun lögreglunnar í Gulaþingi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.