1 Nóvember 2019 16:22

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Gulaþingi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gulaþing í suðurátt, á móts við Gulaþing 4. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 20 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Gulaþingi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.