28 Febrúar 2013 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, á milli Fróðengis og Laufengis. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 52%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Gullengi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.