19 Febrúar 2015 16:12

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, á móts við Gullengi 4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Gullengi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.