12 Júní 2015 16:53

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík á mánudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í austurátt, á móts við Gullengi 4. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Gullengi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.