7 Júní 2018 09:17

Brot 29 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, á móts við Gullengi 4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 74 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Gullengi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.