12 Júní 2019 17:50

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í suðurátt, á móts við Gullengi 4. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 64 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Gullengi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.