19 Febrúar 2010 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, við Laufengi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Eftirlit lögreglunnar í Gullengi var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað.