29 Júlí 2015 10:54

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt, á móts við Gvendargeisla 80. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.